Böggarinn
31.05.2007 21:33:21 / steini84

Reykingar. Nei takk!

Nú er komið að því. Á morgun mun landinn hætta að reykja á veitinga og skemmtistöðum og fara að taka í vörina í staðin á almannafæri. Þá losnar maður loksins við viðurstyggilega reykingalykt af fötunum manns ef manni skildi detta í hug að láta sjá sig á skemmtistöðum um helgar. En þetta hefur líka ókosti með í för, þegar maður er orðinn svo ofurölvi að maður vill fara að fá sér eina sígarettu þá má maður standa úti í kuldanum með hversdagsreykingamönnunum. Hitt er þó verra að við þessar lagabreytingar mun tapast hin mikla list að blása reykhringi. Til þess að blása reykhringi þarf maður helst að vera innandyra þar sem ekki er mikil hreyfing á lofti, eins og t.d. í líkkistuherberginu á Celtic. Ómögulegt er að blása vel skapaða reykhringi úti í rokinu og rigningunni sem er ríkjandi á Íslandi. Nú munum við aldrei aftur fá að sjá reykhringjalistsköpun Gandalfs frá Ytra-Hvoli þar sem hann verður settur í steininn fyrir ólöglegar reykingar. Legg ég því til að sett verði á stofn nefnd til þess að búa til fagurfræðilegar kúnstir með munntóbakshráka, sem síðan er hægt að troða inní næstu stórepísku trílógíu sem kemur í kvikmyndahús, til að bæta Íslendingum og heiminum upp missi þessarar kúnstar, að blása reykhringi.

 Gandalfur er einstaklega svalur við reykingar

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 04:07:41 / steini84

Tjellingar

Alltaf hreint þetta helv. væl í konum. Búhú, ég fæ ekki nema 80% af launum karla, búhú, það er ekkert jafnrétti það var jafnhæfur karl ráðinn í staðinn fyrir mig :cry:

Newsflash, þið hafið það ekki svo slæmt. Þið lifið 5 árum lengur en karlar að meðaltali, þið getir sem sagt hirt 20% lægri launin ykkar 5 árum lengur + að þið fáið lífeyri og arf eftir karlskömmina ykkar. Ástæða þess að flestir karlar eru með meiri laun er vegna þess að þeir vinna lengri yfirvinnu og/eða leggja meiri metnað í það að vinna mikið til þess að fá 20% launahækkun. Við vinnum mikið meira heldur en þið, svo við drepumst fimm árum fyrr til að þið getið lifað af okkar vinnu þegar við erum dauðir!!

Og ef að jafnhæfur karl var ráðinn fram yfir þig, þá er vinnuveitandinn fífl!! 3 ástæður til að ráða frekar konuna en karlinn:

1. Hún þiggur 20% lægri laun:)

2. Hann hefur engann lagalegann grundvöll fyrir að kæra, en ef að þú ræður hana ekki kærir hún þig til gjaldþrotaskipta!!

3. Hún er fallegri,:P þú vilt ekki þurfa að horfa á sveittan, ljótann karlpung upp á hvern einasta dag í vinnunni...er það

Stelpur, hættið að væla. Ef þið gerið það fyrir mig skla ég sjá til þess, þegar ég verð vinnuveitandi, að þið verðið ráðnar, þrátt fyrir grófa vanhæfni, og ég skal láta ykkur fá 20% hærri laun en karlana, bara ef þið, plís, hættið að væla!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 20:22:05 / steini84

framandi félagsskapur...

Hef oft velt fyrir mér tilgangi hvers konar einkennisbúninga...

Vissuð þið að eldra kvenfólk er með einkennisbúning! Um leið og kvenmaður verður 67 ára gengur hún í eldriborgarafélag og fær afhent við þetta tilefni einhverskonar sjal (yfirleitt til að nota í stað húfu) og fjölnota innkaupapoka (til að mótmæla því að pokasjóður er ekki eldriborgaraafslátt). Eldri karlar fá líka tóbaksklút, pontu og rakvél sem sér til þess að þeir líta alltaf út fyrir að hafa rakað sig fyrir tveim dögum.

Eins fá alvöru menntamenn Che Guevara bol, frakka og trefill. Rónar fá þrjár úlpur, mikið notaðan einnota plastpoka og spíraflösku til að viðhalda byttulyktinni (hún endist þeim samt aldrei nema einn dag). Hnakkar fá ljósa- og líkamsræktarkort, hárgel í líterstúbu (sem endist jafn lengi og spíraflaskan) og Celicu (yfirleitt á kostnað foreldra/eitulyfjasölutekna)

Ég sjálfur (sem skráður suddi) fæ ruddadós, ljótann stuttermabol, og svitafýlu á flösku. Einnig fæ ég ókeipis námskeið í yfirdrulli, kvenhatri og þjóðernishroka. Eins og sjá má er hilla fyrir alla :D Nú er mál að finna stereotýpu að þínu vali og senda umsóknareyðublað í flokkunarstöð í næsta nágrenni við þig!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 20:05:38 / steini84

Hávaðamengun

Eftir að hafa flutt í Höfuðborgina hef ég orðið fyrir miklum óþægindum af völdum hverskonar framkvæmda og iðnaðar. Helv. vörubílar, flugvélar, byggingarframkvæmdir og leikskólar eru alls staða með tilheyrandi hávaða og látum. Þó að ég búi við flugbrautarendann þá er hitt öllu verra að vakna þunnur við skrílslæti í hálfuppréttum, hlandblautum skriðdýrum á sandkassafæði sem í daglegu tali kallast börn. Í bæjarskipulagi er reynt að hafa hvers konar iðnað og annað sem veldur (hávaða)mengun utan við íbúðabyggð. Ef þið hafið einhverntíma búið við hliðina á leikskóla þá vitið þið það að af þeim stafar mengun. Börnin burt úr borginni. Hávaðalausa þynnkudaga!

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 19:59:44 / steini84

Eðli alkóhólisma?

Hvernig stendur á því að annars fullkominn og heilsuhraustur ungfoli eins og ég sjálfur fer að því að fara á óminnisfyllerí og skandalaísera á epískum skala hverja einustu helgi?
Það er bara svo helv. gott að drekka, maður þarf ekkert að hugsa og svo verður allt svo fyndið og skemmtilegt, sérstaklega maður sjálfur. Ruglið sem veltur upp úr alkóhólistanum (mér) er stundum svo súrrealískt að það fattar það enginn nema maður sjálfur. Fólk horfir furðalega á mann og heldur (með réttu) að maðurinn sé algert fífl. Svo þegar maður vaknar daginn eftir man maður ekkert hvað gerðist (eða um hvað brandarinn snérist) og allir þeir sem ekki föttuðu húmorinn eru alvarlega að hugsa um hvernig væri best að koma manninum á geðveikrahæli. Algert kraftaverk að maður hafi aldrei lent í því að vera klessubarinn, guð veit að ég hef gefið mörg tilefni til þess.
Fyrir þá sem eiga eftir að hitta alkóhólistann (my drunken alter ego) í bænum hef ég eitt ráð: Geðveikilingurinn sem stendur fyrir framan þig ER að grínast, skrifaðu atburðina niður, settu blaðið í vasann á honum og hrindu strax á leigubíl og sendu hann heim áður en hann gefur siðferðiskennd nærstaddra banasár!

» 0 hafa sagt sína skoðun